Svona lítur nýi landsliðsbúningurinn út: „Ég er viss um að þessi búningur mun hreyfa við okkur“

Nýr búningur fótboltalandsliða Íslands var kynntur í dag. Íslenska karlalandsliðið í fótbolta mun leika í búningnum á HM í Rússlandi í sumar.

Guðni Bergsson, formaður KSÍ, flutti ræðu í tilefni dagsins og sagðist afar spenntur fyrir nýja búningnum. „Þetta er stór og skemmtileg stund fyrir okkur,“ sagði Guðni Bergsson. Ég er viss um að þessi búningur mun hreyfa við okkur.“

Skiptar skoðanir voru um síðasta landsliðsbúning og spennandi verður að sjá hvernig fólk tekur nýja búningnum.

Auglýsing

læk

Instagram