Það sem við vitum um árásina í Manchester: Tuttugu og tveir látnir, barna og ungmenna enn saknað

Sprengja sprakk í andyri Manchester Arena í Manchester á Englandi í kvöld. Tónleikum bandarísku söngkonunnar Ariönu Grande var að ljúka.

Það sem við vitum um atvikið

Að minnsta kosti tuttugu og tveir eru látnir, þar á meðal börn og fleiri en 59 manns eru slasaðir. Guardian greinir frá þessu.

Lögregla telur að árásarmaðurinn hafi verið einn á ferð. Hann sprengdi sig upp og því er um sjálfsvígsárás að ræða.

Talið er að um hryðjuverk hafi verið að ræða.

Um 21 þúsund manns voru á tónleikunum þegar sprengjan sprakk.

Ekki eru allir komnir í leitirnar eftir árásina í gærkvöldi og leita fjölskyldur og vinir þeirra að þeim, meðal annars með hjálp samfélagsmiðla. Margir hafa birt myndir af þeim sem saknað er undir myllumerkinu #MissingInManchester

Hér má sjá myndband þar sem heyra má sprenginguna og sjá viðbrögð gesta

Ariana Grande er miður sín vegna árásarinnar

Auglýsing

læk

Instagram