Það sem við vitum um ránið á Kim Kardashian í París, ræningjarnir flúðu á reiðhjólum

Kim Kardashian yfirgaf Frakkland í einkaþotu í morgun eftir að hafa verið bundin og rænd af grímuklæddum mönnum í lögreglubúningum í lúxusíbúð Parísar í nótt. Talið er að ræningjarnir hafi komist á brott með skartgripi sem voru metnir á um 11 milljónir dala.

Hér er það sem við vitum um ránið

Um klukkan þrjú í nótt réðust fimm menn með grímur, klæddir eins og lögregluþjónar inn í hús þar sem Kim Kardashian dvaldi á meðan tískuvikan í París fór fram.

Þeir hótuðu manni í móttökunni, beindu að honum byssu, handjárnuðu hann og neyddu hann svo til að hleypa sér inn íbúð Kim. Tveir menn fóru inni í íbúðina, miðuðu byssu á höfuð Kim, bundu hana og læstu inni á baðherbergi, samkvæmt frétt US Weekly.

Samkvæmt frétt TMZ grátbað Kim þjófana um að þyrma lífi sínu, hún væri tveggja barna móðir. Hún náði að losa sig og óska eftir hjálp þegar ræningjarnir voru farnir á brott.

Kim var ekki barin af ræningjunum og engum skotum var hleypt af byssum í íbúðinni. Talsmaður Kim segir að hún sé í uppnámi en ómeidd að öðru leyti. Samkvæmt TMZ sagði hún að ránið hafi verið það versta sem hefur komið fyrir hana.

Á CNN kemur fram að ræningjarnir hafi komist á brott með skartgripi upp á 6,7 milljónir dala og hring sem er metinn á 4,5 milljónir dala. Þeir flúðu á reiðhjólum og lögreglan segir að um vel skipulagt rán hafi verið að ræða.

Rannsókn stendur yfir í húsinu og lögreglan fer yfir sönnunargögn. Samkvæmt US Weekly hefur ljósmyndari sem elti Kim í París verið yfirheyrður. Hann komst meðal annars inn á veitingastað þar sem hún borðaði ásamt fjölskyldu sinni fyrr í vikunni. Hann var klæddur eins og lögregluþjónn.

Kim var viðstödd tískisýningu Balenciaga nokkrum klukkustundum áður en ránið fór fram.

Rapparinn Kanye West, eiginmaður hennar, var staddur í New York og var á sviði þegar hann fékk fréttirnar. „Fyrirgefið en ég þarf að stöðva tónleikana. Neyðartilvik í fjölskyldunni,“ sagði hann.

https://youtu.be/PxZ6j2MzcQg

Þrátt fyrir að Kim hafi verið í París með móður sinni og systrum þá dvöldu þær á hóteli. Börn hennar og Kanye West voru ekki á staðnum.

Auglýsing

læk

Instagram