Búið er að lóga selkópnum sem slapp úr Fjölskyldu- og húsdýragarðinum aðfaranótt mánudags og fannst á tjaldstæðinu í Laugardalnum. Þetta kemur fram á Vísi.
Í umfjöllun DV kemur fram að refirnir séu fóðraðir með selkjötinu.
Eftir því sem Nútíminn kemst næst ætti starfsfólk húsdýragarðsins að bjóða upp á selkjötið í veislu starfsmanna, sem haldin er á hverju hausti. Þá er starfsfólki boðið að gæða sér á dýrunum sem voru í garðinum um sumarið og kjöt dýranna á slikk.
Í skýrslu Matís um nýtingu selkjöts til manneldis kemur fram að selkjöt og aðrar afurðir sels hafi verið nýttar hér á landi frá örófi alda, eða þar sem selur hefur veiðst á annað borð.
Í skýrslunni kemur fram að selur sé mjög góður prótíngjafi auk þess sem kjötið inniheldur nauðsynlegar amínósýrur. Selkjöt er sérlega næringarríkt og framúrskarandi járn- og B vítamíngjafi.
Hér eru fimm fornar aðferðir sem hægt er að nota til að innbyrða kjötið.