Ungu bræðurnir sem lögreglan á Akureyri leitaði að eru fundnir

Lögreglan á Akureyri óskar liðsinnis við að finna tvo unga bræður sem eru týndir á Akureyri. Lögreglan biðlaði til allra sem geta veitt upplýsingar á Facebook í dag. Drengirnir eru klæddir m.a. í úlpur, annar í dökkbláa og hinn í ljósbláa. Þeir eru líklega með reiðhjólahjálma á höfði. Þeir sem geta veitt lögreglu upplýsingar eru beðnir að hafa samband í síma 444-2800. Þeir fóru frá heimili sínu um morgun, föstudag, og sáust síðast á Drottningarbraut um kl. 07:00. UPPFÆRT: Piltarnir eru fundnir.
Auglýsing

læk

Instagram