Sigurvegari VMA vill taka þátt í Söngkeppni framhaldsskólanna

Sigurvegari í söngkeppni Verkmenntaskólans á Akureyri tekur þátt í æfingarhelgi Söngkeppni framhaldsskólanna í Reykjavík og freistar þess að taka þátt í lokakeppninni sem fer fram í Reykjavík 9. apríl og verður í beinni útsendingu á RÚV.

Nútíminn greindi frá því í kvöld að VMA hafi dregið sig úr keppni og vitnaði yfirlýsingu frá Þórdunu, nemendafélagi skólans. Þar kemur fram að nemendafélagið sé ósátt við breytingar á keppninni.

Eftir að fréttin birtist hafði Steinunn Ólína Hafliðadóttir, formaður Sambands íslenskra framhaldsskólanema (SÍF), samband við Nútímans og sagði að Elísa Erlendsdóttir, sigurvegari í söngkeppni VMA, vilji taka þátt og að SÍF ætli að aðstoða hana við það.

Söngkeppni framhaldsskólanna verður með breyttu sniði í ár. Stærsta breytingin er sú að 12 skólar verða valdir af dómnefnd til þátttöku í lokakeppninni, sem verður í beinni útsendingu á RÚV. Skólar sem senda inn atriði greiða þátttökugjöld óháð því hvort þeir komist í lokakeppnina eða ekki.

Steinunn Ólína Hafliðadóttir, formaður Sambands íslenskra framhaldsskólanema (SÍF), segir í samtali við Nútímann að komið hafi verið á fót styrktarnefnd til að hjálpa skólum að safna fyrir þátttöku í keppninni.

Allir skólar fái að taka þátt í sérstakri æfingarhelgi þar sem dómarar verða á svæðinu og verður frammistaða þar á meðal þess sem tekið verður til greina þegar atriði verða valin í aðalkeppnina.

Í yfirlýsingu á vef SÍF kemur fram að Söngkeppnin hafi undanfarin ár verið rekin með miklu tapi.

Söngkeppnin hefur síðastliðin ár verið unnin í samstarfi á milli SagaFilm og SÍF. Í upphafi á skipulagningu söngkeppninnar 2016 var framkvæmdarstjórn SÍF tjáð að SagaFilm gæti ekki staðið undir kostnaði keppninnar ef hún kæmi ár eftir ár í milljóna mínus. Breytt fyrirkomulag keppninnar er því vegna óskar okkar um að halda keppninni lifandi.

Þar segir að breytingar á þátttökugjaldi séu gerðar til að passa að þessi stökkpallur fyrir unga og efnilega söngvara glatist ekki. Allir  skólarnir 30 greiða 40 þúsund króna þátttökugjald sem gefur þeim aðgang að æfingarhelgi SÍF. Þar fá þátttakendur framkomunamskeið frá Glowie, hljómsveitaræfingu, hárgreiðslu og förðun, myndatöku og innslög.

„Við skiljum vel að nemendafélög Framhaldsskólanna eru misvel stæð og hefur framkvæmdarstjórn SÍF því í fyrsta sinn skipað fjáröflunarteymi til að koma til móts við kostnað nemendafélaga við söngkeppnina,“ segir í yfirlýsingunni.

„Okkar markmið er að gera snið keppninnar sjálfbært og straumlínulagað svo að Söngkeppnin geti verið haldin ár eftir ár. Keppnin er, eins og segir, stökkpallur fyrir unga og efnilega söngvara sem eru í þínu nemendafélagi. Við myndum harma það ef að tækifæri líkt og þetta, glatist.“

Auglýsing

læk

Instagram