Wow gefur flugmiða á Tinder, fólk hvatt til að daðra við flugfélagið

Flugfélagið Wow Air gefur kanadískum og bandarískum hjartaknúsurum tækifæri til að vinna miða með því að daðra við flugfélagið á Tinder. Wow byrjaði á Tinder í Kanada í gær en skýtur einnig upp kollinum á áfangastöðum flugfélagsins í Norður-Ameríku á næstu dögum: Boston og Washington.

Fólk þarf að byrja á því að matcha við Wow á Tinder en þá er aðeins hálfur sigur unninn. Viðkomandi þarf að daðra við flugfélagið á samskiptamiðlinum og freista þess að fá tvo flugmiða til Íslands.

Í frétt á vef Road Warrior Voices er haft eftir kynningarfulltrúa flugfélagsins að viðkomandi þurfi að heilla flugfélagið með góðum pick up línum til að vinna flugmiðana.

Hægt er að fylgjast með hvar Wow byrjar á Tinder á Snapchat flugfélagsins: wow-air.

Auglýsing

læk

Instagram