Sjáðu myndirnar úr geggjuðu afmæli PUBLIC HOUSE – Hér eru myndirnar!

Veitingastaðurinn Public House á Laugaveginum er svokallaður Gastro Pub – sem þýðir að hann býður upp á hágæða bjór í bland við girnilega rétti. Sérstaða Public House er að vera með asísku ívafi.

Íslendingar hafa tekið staðnum opnum örmum – en hann hefur nú verið starfræktur í 2 ár – og var haldið upp á það með pompi og prakt á dögunum.

Af þessu tilefni voru 12 vinsælustu réttir Public House á aðeins 790 kr. allan daginn – og voru ófáir sem nýttu sér þetta tilboð.

Dagurinn var einn stór Happy Hour – og flæddi gleðin ótamið

Boðið var upp á tónlist, grill og gaman – líkt og má sjá á myndum sem fylgja hér með.

Hér má sjá glas sem er alveg í lausu lofti. 

Það voru að sjálfsögðu galdaðir fram töfrar eins og þeir gerast bestir.

Rapparinn Bent stóð fyrir bingói sem vakti mikla kátínu.

Ógleymanlegt partý – og mikið stuð á Public House. Til hamingju með árin tvö!

Auglýsing

læk

Instagram