Auglýsing

Víkingaklappið tekið fyrir Sturlu á HEIMSMEISTARAMÓTINU! – Myndband!

Heimsmeistarmótið í stórsvigi fór fram í dag og Sturla Snær keppti fyrir hönd okkar Íslendinga. Sturla vann sér inn þátttökurétt í gegnum undankeppnina. Þar fóru 25 bestu áfram og Sturla Snær gerði sér lítið fyrir og endaði þar í 2.sæti.

Á heimasíðu Skíðasambands Íslands er skrifað.
Þrátt fyrir að hafa staðið sig vel í undankeppninni hóf Sturla Snær leik númer 81 í röðinni, en ræst er út eftir stöðu á heimslista FIS. Þrátt fyrir að hafa gert mistök í fyrri ferðinni endaði Sturla Snær í 52.sæti að henni lokinni og komst því í seinni ferðina þar sem einungis 60 bestu fá að fara. Í seinni ferðinni hlekktist Sturlu Snæ á, hann fór á hliðina eftir að hafa misst pressu á ytra skíðinu og missti af næsta hliði. Mikil vonbrigði fyrir Sturlu Snæ en þrátt fyrir það var mikið afrek að komast í seinni ferðina. 

Þetta er glæsilegt hjá Sturlu og auðvitað fékk drengurinn víkingaklappið eftir fyrri ferð!

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing