Er hægt að hægja á bílaumferð í Reykjavík með hárblásara? Sjáðu myndbandið

Bresk kona vakti heimsathygli á dögunum þegar henni tókst að hægja á umferð í götunni sinni með hárblásara. Hin 64 ára gamla Jean Brooks greip til sinna ráða til að hægja á ökumönnum í götunni sinni og beindi að þeim hárblásara og virtist þannig vera að stunda radarmælingar.

Nútíminn vildi vita hvort þetta væri í raun og veru hægt. Elísabet Inga, útsendari Nútímans, fór því út vopnuð hárblásara og prófaði að reyna að hægja á umferð. Horfðu á myndbandið hér fyrir ofan.

Auglýsing

læk

Instagram