Hjálmar fór hamförum á Snapchat í kosningagríni: Í sleik við Enska og mótmælti fyrir utan Shooters

Skemmtikrafturinn Hjálmar Örn grínaði á Snapchat (hjalmarorn110) á dögunum undir kassamerkinu #kosningahausverkur. Kosið verður á laugardaginn og Hjálmar brá sér meðal annars í gervi hvítvínskonunnar, Bjarna gröfumanns og Karls Önnusonar Magnasonar Sigrúnarsonar af því tilefni.

Ýmislegt gekk á og hvítvínskonan hitti meðal Enska, sem Snappar daglega um enska boltann, og það gat aðeins endað á einn veg. Þá fór Hjálmar sem Karl Önnuson Magnason Sigrúnarson og bannaði fólki að fara inn á klúbbinn Shooters. Horfðu á myndbandið hér fyrir ofan.

Auglýsing

læk

Instagram