Hjálmar Örn slær í gegn á Snapchat: „Myndi elska að fá TV-time fyrir karakterana mína“

Skemmtikrafturinn Hjálmar Örn Jóhannsson hefur heldur betur slegið í gegn undanfarin misseri. Yfir 10 þúsund manns fylgja Hjálmari á Snapchat þar sem karakterar sem hann hefur skapað fá að njóta sín. Persónur eins og Kristján, Hvítvínskonan og Halli Hipster hafa öll notið gríðarlegra vinsælda á Snapchat en Hjálmar væri til í að sjá þau í sjónvarpi.

Hjálmar byggir karakterana á fólki sem hann umgengst. „Ég er oftast með fyrirmyndir af karekterum í fólki sem ég þekki sem dæmi þá er Hvítvínskonan byggð á konum á snappinu mínu og í kringum mig, “ segir Hjálmar í samtali við Nútímann.

Eins og áður segir horfa yfir tíu þúsund manns á Snapchat Hjálmars á degi hverjum en hann viðurkennir að það væri gaman ef Hvítvínskonan, Halli Hipster og allir hinir kæmust í sjónvarp.

Ég myndi elska að fá TV-time fyrir karekterana mína en ég er samt alveg rólegur á meðan 10 þúsund manns geta fylgst með þeim á Snapchat.

Hjálmari hefur stundum verið líkt við ástælasta skemmtikraft landsins, Ladda, en hann segist enn eiga langt í land ef hann ætlar að ná honum.

Hjálmar segist bera gríðarlega virðingu fyrir Ladda. „Um daginn fékk ég tækifæri til að leika á móti Ladda og ræddi við hann um hans karektera og mína, það var ótrúleg upplifun. Hann sagði mér að hann ætti um 70 stykki en ég er með um 11,“ segir Hjálmar en fyrir þá sem vilja fylgjast með honum á Snapchat þá er notendanafn hans þar, hjalmarorn110.

Sjáðu brot af því besta frá Hjálmari í spilaranum hér að ofan

 

Auglýsing

læk

Instagram