Myndband: Annie Mist lyfti 1.272 kílóum á einni mínútu og bætti heimsmet

Annie Mist Þórisdóttir, fyrrum heimsmeistari í Crossfit, gerði sér lítið fyrir og setti heimsmet í New York í morgun. Vísir.is greindi frá þessu í dag.

Metið fólst í því lyfta eins mikilli þyngd frá gólfi og uppfyrir haus á einni mínútu og hægt var. Fulltrúi frá Heimsmetabók Guinness var mættur til að fylgjast með en fyrrum heimsmetið var 1212 pund. Annie Mist stórbætti það þegar hún lyfti samtals 2805 pundum eða rúmum 1272 kílóum á einni mínútu.

Annie var með beina útsendingu á Facebook-síðu sinni þegar hún bætti metið en útsendinguna má sjá hana hér að neðan.

Live on the TODAY SHOW on NBC attempting a Guinness world record. 1min Thrusters for max accumulated weight!

Posted by Annie Thorisdottir on Mánudagur, 4. september 2017

 

Auglýsing

læk

Instagram