Myndband: Sterkustu chilisósurnar í bænum smakkaðar: „Ég bara tárast. Þetta er ekki gott“

Við vildum finna sterkustu chilisósuna í bænum og fengum Björn Teitsson chilisérfræðing til að hjálpa okkur. Horfðu á myndbandið hér fyrir ofan.

Björn og Kristín Péturs, útsendari Nútímans, smökkuðu fimm sósur: Siriracha, Tabasco, Surrender the Booty Ghost Pepper, Dave’s Insanity Sauce og loks Da Bomb Beyond Insanity en sú síðastnefnda á að vera ein sú sterkasta á plánetunni.

Þetta fór rólega af stað en Kristín fór að svitna og tárast þegar hún smakkaði síðustu sósurnar. Björn kenndi okkur gott trikk, að blanda sósunum saman við kokteilsósu og búa þannig til það sem hann kallar chili mæjó fátæka mannsins.

Auglýsing

læk

Instagram