Nemendur í Verzló lesa ömurleg ummæli um sjálfa sig af internetinu: „Þvílík leti og frekja!“

Eins og Nútíminn greindi frá þá komu nemendur í Verzló að keðjum og skiltum sem meinuðu þeim að leggja ákveðin í bílastæði við Kringluna í vikunni. Mikill hiti var í Verzlingum vegna málsins og ætluðu einhverjir að sniðganga þjónustu Stjörnutorgs í dag og koma með nesti.

Síðar kom í ljós að boðuð mótmæli voru meira í gríni en alvöru en þá höfðu virkir í athugasemdum látið í sér heyra um málið. Nútíminn fór í Verzló í morgun og fékk nokkra nemendur til að lesa upp ömurleg ummæli um sjálfa sig af internetinu. Horfðu á myndbandið hér fyrir ofan. Myrkir í athugasemdum, gjörið svo vel.

Næst ▶️ Áslaug Arna les sjö ömurleg ummæli um sjálfa sig af internetinu

Lækaðu Facebook-síðu Nútímans myndbanda og þú missir ekki af neinu!

Auglýsing

læk

Instagram