Nesti Sigmundar Davíðs smakkað með Hrefnu Sætran: „Ég hefði aðeins kryddað þetta til“

Nesti Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, þingmanns Framsóknarflokksins, vakti mikla athygli í vikunni. Sigmundur birti mynd á Facebook af tekexi sem hann hafði smurt með hráu nautahakki og sagði að einn af mörgum kostum við íslenskt kjöt væri að maður þyrfti ekki að elda það.

Tinna Björk, útsendari Nútímans, hitti meistarakokkinn Hrefnu Rósu Sætran sem velti vöngum yfir þessum rétti ásamt því að þær smökkuðu hann að sjálfsögðu. „Ég hef aldrei séð svona tekex með hráu nautakjöti áður — þetta var soldið sérstakt,“ sagði Hrefna.

Horfðu á myndbandið hér fyrir ofan.

Auglýsing

læk

Instagram