Steinarr er hættur að nota síma og hvetur aðra til að prófa: „Síminn var farinn að stjórna lífinu mínu“

Athafnamaðurinn Steinarr Lár er hættur að nota síma. Þetta tilkynnti hann vinum sínum á dögunum. „Síminn var farinn að stjórna lífinu mínu, eins og hjá svo mörgum,“ segir hann í viðtali við Nútímann.

Elísabet Inga, útsendari Nútímans, hitti Steinarr og fékk að fræðast aðeins um þessa ákvörðun. Horfðu á myndbandið hér fyrir ofan. „Konan mín var smá áhyggjufull fyrir þetta að hún yrði einhvers konar ritari fyrir mig. Það hefur ekki orðið,“ segir hann.

Steinarr segir fólk hrista hausinn yfir þessari ákvörðun en hann hvetur alla til að prófa.

Auglýsing

læk

Instagram