today-is-a-good-day

Tvíhöfði aftur í loftið og Jón Gnarr rifjar upp gamla takta: „Ég fékk fullnægingu“

Á dögunum var tilkynnt að Tvíhöfði væri á leiðinni í loftið á ný á Rás 2. Tvíhöfði verður á dagskrá á laugardögum í sumar og hefur göngu sína 3. júní.

Margir bíða ansi spenntir eftir því að heyra klassíska dagskrárliði en Tvíhöfði náði oft ótrúlegum hæðum þegar „hlustendur“ hringdu inn og spjölluðu við Sigurjón Kjartansson.

Jón Gnarr rifjaði upp slíka takta í sófa á RÚV í vikunni og leikstjórinn Gaukur Úlfarsson birti af því myndband á Twitter. Þar heyrum við Jón nota kunnuglega rödd til að lýsa viðbrögðum sínum þegar tilkynnt var um endurkomu Tvíhöfða.

Horfðu á myndbandið hér fyrir neðan

Auglýsing

læk

Instagram