Örskýring: Af hverju er fólk í Bandaríkjunum að brenna skó? Stóra Nike-málið útskýrt á mannamáli

Um hvað snýst málið?

Í vikunni hóf afmarkaður hópur fólks í Bandaríkjunum að brenna Nike-skó og annan fatnað merktum fyrirtækinu. Þetta gerði fólk til að afneita Colin Kaepernick, nýjasta andliti „Just Do It“-herferðar Nike. Auglýsinguna má sjá hér.

Hvað er búið að gerast?

Colin Kaepernick lék amerískan fótbolta í NFL-deildinni með San Francisco 49ers. Árið 2016 hóf hann að krjúpa á meðan þjóðsöngurinn var leikinn fyrir leiki liðsins til að mótmæla kynþáttafordómum í Bandaríkjunum með sérstakri áherslu á lögregluofbeldi. „Ég ætla ekki að standa og vera stoltur af fána lands sem kúgar þeldökkt og litað fólk,“ sagði hann í kjölfarið.

Í kjölfarið fylgdu fleiri leikmenn í NFL-deildinni og fleiri íþróttum fordæmi Kaepernick og vöktu mótmælin heimsathygli. Hann fékk stuðning úr ýmsum áttum, meðal annars frá hermönnum og lögreglumönnum.

Mótmælin voru einnig umdeild og fannst mörgum Kaepernick vera að sýna Bandaríkjunum vanvirðingu. Einn af þeim sem hefur gagnrýnt Kaepernick harðlega er Donald Trump Bandaríkjaforseti. Hann birti þetta tíst í kjölfarið á herferð Nike.

Svo virðist sem þau sem brenna Nike-fatnað sé aðallega stuðningsfólk Trump, sem telur að Kaepernick hafa sýnt Bandaríkjunum vanvirðingu með aðgerðum sínum.

Hvað gerist næst?

Kaepernick telur að NFL-deildin sé að útiloka sig vegna mótmæla sinna en hann er ekki í neinu liði sem stendur. Hann hefur kært deildina og verður málið tekið fyrir á næstunni.

Örskýringar eru 200 orða fréttaskýringar Nútímans um mál sem mikið er fjallað um. Sendu okkur póst ef þú ert með hugmynd að örskýringu.

Auglýsing

læk

Instagram