Hildur flytur „1993“ í hljóðveri Sýrlands

Í áttunda þætti vefseríunnar Sýrland Sessions flytur söngkonan og lagasmiðurinn Hildur lagið 1993 (sjá hér að ofan). 

Líkt og fram kemur í viðtalinu er lagið á persónulegu nótunum og fjallar um að elta sína bernskudrauma:

„Þetta lag er svona svolítið óður til þess að trúa á það sem maður dreymdi um þegar maður var lítil, og láta ekkert stoppa sig, og líka kannski, þegar maður er kominn þangað—að átta sig á því.“

Þess má einnig geta að vefsíðan The Four Oh Five fjallaði nýverið um lagið á síðu sinni.

Nánar: https://www.thefourohfive.com/…

Auglýsing

læk

Instagram