Fyrrverandi kærasti Martynu lifði tvöföldu lífi – „Gaslýsingin var svo mikil“

„Hann var fyrsta manneskjan sem fannst allt sem ég geri flott, allt sem ég klæðist flott, allt sem ég segi, hann dýrkaði mig bara. En það breyttist – sem og hegðun hans – þegar líða fór á sambandið.“

Svo mælir Martyna Ylfa, sem er nýjasti gestur Eddu Falak í hlaðvarpinu Eigin Konur. Í þættinum segir hún frá sambandi sínu við mann sem lifði tvöföldu lífi, beitti hana andlegu ofbeldi, gekk yfir kynferðisleg mörk og sigaði lögreglunni á hana með fölskum ásökunum. Martyna telur að maðurinn umræddi sé með narsissíska persónuleikaröskun. 

Hægt er að horfa á þáttinn hér og lesa ítarlegri frásögn Martynu á vef Stundarinnar.

Martyna segir: „Þegar hann tók eftir að ég væri ekki fullkomin, að ég væri manneskja sem fengi stundum magaverk eða væri stundum í vondu skapi, stundum væri mikið að gera í vinnunni eða ég væri stressuð,“ segir hún.

„Flótlega hrundi sjálfstraustið mitt og mér leið eins og ég mætti ekki segja neitt, ég mátti ekki spurja margra spurninga. Ég vissi alveg þegar hann var reiður og hann sýndi mér svona hvað hann gæti gert, að hann gæti meitt mig ef hann myndi vilja það”.

Síðar komst Martyna að því að maðurinn hefði átt aðra kærustu á meðan þau voru saman. Hún ákvað að slíta sambandinu eftir að hún komst að sannleikanum. Þegar hún hugsar til baka sér hún nú að minningar þeirra voru falskar. „Þetta var ekki satt og þetta var ekki hann. Að vita allan þennan tíma var hann í öðru sambandi, að leika leik. Manneskjan sem ég elskaði mest var ekki til,“ segir hún.

„Um nóttina hringdi hann síðan í lögregluna. Ég var steinsofandi klukkan hálf eitt um nóttina þegar fjórar löggur bönkuðu upp á hjá mér. Ég opnaði fyrir þeim og spurði hvað væri eiginlega að gerast. Þeir sögðu að það hafi borist tilkynning um að ég hafi verið að senda ógnandi og sjálfsógnandi skilaboð. Ég vissi ekkert hvað var verið að tala um, ég var bara sofandi heima hjá mér…

 

Gaslýsingin var svo mikil að ég fór í símann minn og skoðaði hvort ég hefði sent einhver skilaboð, hvort ég væri búin að missa þráðinn algjörlega. En nei, ég hafði ekki gert það.“

Auglýsing

læk

Instagram