Elísabet Bretlandsdrottning látin

Elísabet Englandsdrottning er látin, 96 ára að aldri. Þetta kom fram í tilkynningu frá bresku hirðinni nú á sjötta tímanum.

Elísabet er fædd þann 21. apríl 1926. Hún tók formlega við krúnunni árið 1953, þá 26 ára gömul, eftir andlát föður síns, Georg VI, árinu áður. Hann dó nokkuð snögglega úr lungnakrabbameini, aðeins 56 ára að aldri.

Breska hirðin tilkynnti klukkan hálf eitt að breskum tíma, hálf tólf að íslenskum tíma í dag, að læknar hefðu áhyggjur af heilsufari drottningar. Fljótlega eftir það bárust fréttir af því að börn og barnabörn drottningar væru á leið til Skotlands til að vera við hlið hennar.

Drottningin dró mjög úr opinberum verkefnum sínum síðustu mánuði vegna versnandi heilsu. Hún hefur átt við skerta hreyfigetu að stríða og dvalið í Balmoral kastala í Skotlandi.

 

Auglýsing

læk

Instagram