Hvað er besta rapp ársins?

Tíminn flýgur og framtíðarlega árið 2020 er handan við hornið – hvar eru flugbílarnir? Allaveganna, árslistar stóru tónlistarmiðlanna eru að detta inn um þessar mundir enda þarf auðvitað að gera árið upp. Í rappinu virðist engin ein plata hafa staðið neitt sérstaklega upp úr eins og gerist sum árin – og kannski er það bara gott. Complex hafa smíðað topp 50 lista yfir bestu plöturnar og skella þar Igor með Tyler í fyrsta sætið. Pitchfork eru með 100 bestu lög ársins og rappið er kannski minna þar en hefur verið síðustu ári – Cash Shit með Megan Thee Stallion og DaBaby er í 12. sæti þar og fyrsta hreina rapplagið á listanum. Kannski þýðir þetta að rapp sé komið í lægð? Eða að platan sem farartæki fyrir tónlist sé búin að vera?

Hér má amk nálgast lista Complex.

og hér Pitchfork.

Við á Ske ætlum í bili bara að segja að besta lag ársins sé hið marg remixaða, nafnabreytta og dularfulla lag Pissy Pamper (eða Kid Cudi) með Playboi Carti og Young Nudy.

Auglýsing

læk

Instagram