Einn með fyrsta vinning í Lottó

Það var stálheppinn viðskiptavinur hjá versluninni Ketilás í Fljótum sem fékk fyrsta vinning í Lottó útdrætti vikunnar og hlýtur rúmlega 9,1 milljón.  Fimm skiptu með sér bónusvinningnum og hlýtur hver þeirra rétt rúmlega 80 þúsund í vinning.

Þrír miðanna eru í áskrift, einn var keyptur á heimasíðunni lotto.is og einn í Fjarðarkaupum í Hafnarfirði.  Það voru einnig fimm vinningshafar með 2. vinning í Jóker og fá þeir 100 þúsund kall í vasann, fjórir miðanna eru í áskrift og einn var keyptur í Lukku Láka í Mosfellsbæ.

Auglýsing

læk

Instagram