Umdeild CAROLE BASKIN úr TIGER KING þáttum Netflix dansar í Dancing With The Stars – myndband!

Carole Baskin varð skyndilega ein umtalaðasta kona Bandaríkjanna eftir að hún kom fram í þáttunum Tiger King á Netflix. Óhætt er að segja að hún sé umdeild en margir elska sérstakan persónuleika hennar á meðan aðrir eru fullvissir um að hún hafi látið myrða eiginmann sinn.

Í Hollywood þá getur kona sem var óbeint sökuð um morð einn daginn – sett á sig dansskóna og skemmt áhorfendum með dansatriðum stuttu eftir. Það er alveg ljóst að þátttaka hennar í Dancing With the Stars mun vekja athygli enda er hún Carole okkar ekki beinlínis þekkt fyrir að ganga með veggjum.

Hér að neðan má sjá kynningu á þátttakendum í nýrri þáttaröð DWTS.

 

Auglýsing

læk

Instagram