Heldur myndlistarsýningu 85 ára gömul

Steinunn Marteinsdóttir, Mosfellingur með meiru, heldur sýningu í Listasal Mosfellsbæjar í tilefni 85 ára afmælis síns þann 18. febrúar. Hún hefur unnið að myndlist í marga áratugi og er einn helsti leirlistamaður landsins. Steinunn hefur síðustu ár lagt stund á málun í vaxandi mæli.

Sýning Steinunnar í Listasal Mosfellsbæjar nefnist JÖKULL – JÖKULL og er þetta yfirlitssýning af jöklamyndum sem listakonan málaði á árunum 1986-2019. Jökullinn, ekki síst Snæfellsjökull, hefur lengi verið sterkt þema í verkum Steinunnar. Í sýningarskrá stendur að jökullinn sé Steinunni eins konar aflvaki og kjölfesta í listsköpun; tákn um þrá, ákall og markmið.

Auglýsing

 Fyrsti sýningardagur er föstudagurinn 12. febrúar og lýkur sýningunni 12. mars. Listasalur Mosfellsbæjar er staðsettur inn af Bókasafni Mosfellsbæjar. Hann er opinn kl. 12-18 á virkum dögum og kl. 12-16 á laugardögum. Bent er á að ekki verður formleg opnun vegna Covid-19.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing