Svörtu sandar valdir til frumsýningar á Berlinale kvikmyndahátíðinni

Alþjóðlega kvikmyndahátíðin BERLINALE hefur valið SVÖRTU SANDA sem eitt af sjö verkefnum til frumsýninga utan heimalands, fyrst íslenskra þáttasería. Hátíðin verður haldin í febrúar næstkomandi en nærri 200 verkefni alls staðar að úr heiminum sækja um á ári hverju. BERLINALE er ein stærsta kvikmyndahátíð í heiminum sem dregur (í venjulegu árferði) að yfir hálfa milljón manns, þar með talið kvikmyndagerðarfólk og annað fólk í faginu frá yfir 130 löndum.

Í umsögn dómnefndar um Svörtu sanda er seríunni hrósað sérstaklega fyrir dýpt í karaktermótun, óvenjulegan snúning á hina hefðbundnu leit að sökudólg í glæpaseríum með því að leyfa persónulegu lífi og áskorunum karakteranna að vega þyngra en málið sjálft sem þau rannsaka. Þar að auki geri áferð seríunnar, myndatakan og hið fallega umhverfi suðurstrandar Íslands, verkefnið sannarlega einstakt að mati nefndarinnar.

Nú þegar hafa Svörtu sandar verið seld til Kína, Ástralíu, Belgíu, Finnlands, Hollands og Indlands auk þess sem frekari fregna af sölum er að vænta á komandi vikum sem gerir að verkum að þættirnir verða aðgengilegir í meira og minna öllum heiminum.

„Þetta er gríðarlegur heiður fyrir okkur öll sem stöndum að seríunni. Umsögn dómnefndarinnar hittir okkur beint í hjartastað og virðist skilja fullkomlega okkar sýn á verkefnið. Ég hef alltaf viljað gera sjónvarp sem er áskorun fyrir áhorfendur að horfa á og meðtaka, vinna með raunverulegar tilfinningar, jafnvel óþægilegar og er ótrúlega hreykinn af þessari viðurkenningu sem sköpunarverk okkar í Glassriver og sérstaklega meðhöfunda minna, Aldísar Amah Hamilton og Ragnars Jónssonar, fær með þessu vali,“ segir Baldvin Z, leikstjóri Svörtu sanda, einn höfunda og eigenda Glassriver.

„Við hjá Glassriver erum mjög stolt af þessu afreki Svörtu sanda. Að framleiðslu á svona seríu koma hundruðir einstaklinga, þar sem er hvert og eitt er ómissandi og í þessu verkefni er ljóst að öll hafa skilað sínu og gott betur en það. Við erum sérstaklega þakklát Stöð 2 fyrir að hafa haft trú á verkefninu og auðvitað öllum erlendum meðframleiðendum og samstarfsaðilum sem gerðu okkur það kleift að láta það verða að veruleika, að ógleymdri auðvitað Kvikmyndamiðstöð Íslands og ráðuneytinu fyrir þeirra stuðning og hvatningu,“ segir Arnbjörg Hafliðadóttir framleiðandi og einn eigenda Glassriver.

Þetta verður í fyrsta skipti sem Baldvin Z fer með verk á BERLINALE en hann hefur átt góðu gengi að fagna á Locarno í Sviss, Busan í Suður- Kóreu, Toronto í Kanada með fyrri verk sín, Lof mér að falla og Vonarstræti, sem er enn mest verðlaunaða verkefni sögunnar á Edduverðlaununum.

Hér er tilvitnun BERLINALE dómnefndarinnar um Svörtu sanda:

„The unusual twist to the classic whodunnit, the way we are drawn into small town life, where childhood and teenage trauma is a constant presence, the physicality of the beautifully composed images – all of this and much more makes this series truly unique to us.“

Hér er lýsing BERLINALE hátíðarinnar á Svörtu söndum:

„A remote, one-horse town in Iceland. A female corpse lies in the black sand. The local authorities assume it was an accident; it would not be the first time that reckless tourists have fallen off an unsecured cliff. Police officer Anita, who has just returned to her hometown from Reykjavik, is the only one who smells a rat and stubbornly continues to investigate. When another woman turns up seriously injured, it becomes apparent that Anita is right. Monumental Icelandic vistas alternate with detailed observations of police work. Corpses stink and are heavy as lead, but at work the talk is also, or even above all, about relationships. Here, everyone knows everyone else, and everyone has a common past, one that seems to weigh heavily on Anita in particular.

Creators Aldís Amah Hamilton, Ragnar Jónsson and Andri Óttarson worked together with creator, showrunner and director Baldvin Z to develop this unconventional crime series in which the protagonists, their concerns and interpersonal relationships are more important than the search for suspects.

A dead body lies in the black sand. The police assume it was an accident. Policewoman Anita, who has returned home from Reykjavik, is the only one who smells a rat. The case forces her to confront her own past.“

Þættirnir Svörtu sandar er framleidd af þeim Arnbjörgu Hafliðadóttur, Andra Ómarssyni og Herði Rúnarssyni hjá framleiðslufyrirtækinu Glassriver. Aldís Amah Hamilton, Ævar Þór Benediktsson, Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, Þór Tulinius og Kolbeinn Arnbjörnsson fara með aðalhlutverk seríunnar, sem sköpuð er eftir hugmynd höfundarins Ragnars Jónssonar, ásamt Aldísi, Baldvin Z og Andra Óttarssyni.

Svörtu sanda má nálgast á Stöð 2+ og að auki er aðgengilegt hlaðvarpið SANDKORN sem fjallar um þættina, þar sem Baldvin Z fer ofan í öll litlu smáatriðin sem eru partur af seríunni en ekki allir áhorfendur muni endilega taka sérstaklega eftir. 

Auglýsing

læk

Instagram