Þýskir karlmenn þurfa nú leyfi frá hernum til að yfirgefa landið í lengri tíma samkvæmt nýjum reglum

Ný lög í Þýskalandi kveða á um að karlmenn á aldrinum 17 til 45 ára þurfi að óska eftir leyfi frá Bundeswehr (þýska hernum) ef þeir hyggjast dvelja erlendis lengur en þrjá mánuði. Reglurnar eru hluti af nýju kerfi sem tengist endurskipulagningu hersins og aukinni áherslu á varnarmál.

Skylda að skrá sig og fara í heilsumat

Samkvæmt nýju fyrirkomulagi þurfa allir karlmenn fæddir eftir 2008 að gangast undir læknisskoðun og svara spurningum um hæfni til herþjónustu. Þótt herþjónusta sé enn ekki almenn skylda, eiga lögin er gera stjórnvöldum það mögulegt að kalla til herskyldu síðar ef ekki tekst að manna herinn með sjálfboðaliðum.

Auglýsing

Í lögunum segir að karlmenn sem hafa náð 17 ára aldri þurfi að fá leyfi frá skrifstofu hersins áður en þeir yfirgefa Þýskaland í lengri tíma en þrjá mánuði.

Markmiðið að tryggja yfirsýn í neyðarástandi

Samkvæmt þýska varnarmálaráðuneytinu er tilgangurinn að halda utan um upplýsingar um einstaklinga sem gætu verið tiltækir ef til neyðarástands kæmi, til dæmis í stríði.

Ekki liggur þó fyrir hvernig reglunum verður framfylgt þegar kemur að framkvæmd né hvaða viðurlög gætu fylgt því að fara úr landi án leyfis.

Hluti af aukinni hervæðingu Þýskalands

Löggjöfin er hluti af vinnu Þýskalands í átt að því að efla her sinn verulega. Friedrich Merz, kanslari, hefur lýst því yfir að markmiðið sé að gera landið öflugra til að tryggja öryggi í Evrópu og byggja upp einn sterkasta her álfunnar.

Þýsk stjórnvöld hafa einnig heitið því að auka útgjöld til varnarmála í allt að 3,5 prósent af landsframleiðslu fyrir árið 2029, sem hluta af víðtækari áætlunum innan NATO.

 

 

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing