Eigandi fyrirtækis í Grindavík er ósáttur: „Allavega væri ég búinn að reka ykkur öll“

Stefán Kristjánsson, eigandi og forstjóri Einhamar Seafood í Grindavík skrifar…

Einhamar Seafood vinnur og flytur út ferskan hágæða fisk þorsk og ýsu í flugi til Ameríku, Bretlands, Frakklands og víðar. Varan okkar er rómuð og eftirsótt, gæði og afhendingaröryggi eru mikil og greitt er hæsta verð, framleiðsluferlið er hátæknilegt, vinnsla og bátar einsog vel smurð vél, falin perla meðal oss.

Veltan er 3.1 milljarður í dýrmætum erlendum gjaldeyri, störfin er 60, laun og tengd gjöld nema 1.160 milljónum og eru ein hæstu meðallaunin í Íslenskum sjávarútvegi.

Árangurinn er starfsfólkinu okkar að þakka sem þrotlaust vinnur langan vinnudag af elju og trúmennsku í síkvikulu starfsumhverfi, heiðurinn er þeirra allan tímann.

Einhamar Seafood er í stórkostlegri hættu að leggjast af, viðskiptasambönd til tuga ára eru í hættu, þekking og reynsla tapast og starfsöryggi fólksins okkar er í miklu uppnámi.

Ég fór í Grindavík í gær ásamt pabba sem er að verða 96 ára. Við fögnuðum heimkomu með vindli og gintussu og fórum síðan á rúntinn. Bærinn okkar var hljóður og nánast mannlaus en því var ekki að heilsa við Bláa Lónið. Þar var ekki þverfótað fyrir rútum og bílum og svo túristum á planinu og á svæðinu í kring. Túristar voru útí hrauni að skoða nýja hraunið, þeir voru upp á varnargörðunum að taka selfí, Dusterar þveruðu nýgerða vegina við garðana, Dusterar voru í vegköntum og flæktust fyrir stóru búkollunum.

Mér er orða vant

Er gjaldeyririnn sem fiskvinnslurnar okkar í Grindavík skapa minna virði en Bláa Lónsins…

Eru störfin okkar í Grindavík minna virði en láglaunastörfin í Bláa Lóninu…

Afhverju er Grindvíkingum ekki treyst fyrir viðveru á heimilum sínum og fyrirtækjum á meðan túristar ganga lausir á hættusvæðum truflandi vinnandi fólk og eru fyrir stórvirkum flutningatækjum?

Rýming tekur 2 mínútur hjá okkur í Einhamar Seafood, hvað tekur rýming langan tíma hjá 500 kínverjum berum í kísilpollinum eða sofandi á herbergjum Bláa Lónsins…

Hverskonar ákvarðanir eru þetta eiginlega…

Það er einna líkast að við sé að eiga óþekk börn sem taka ekki sönsum.

Allavega væri ég búinn að reka ykkur öll.

Auglýsing

læk

Instagram