Spádómssvínið Markús hefur spáð rétt fyrir um alla leiki Englands á HM

Spádómssvínið Markús hinn dularfulli hefur spáð rétt fyrir um alla leiki Englands á HM í Rússlandi. Vinsælt er að fá dýr til að spá fyrir um úrslit leikja á stórmótum, og margir sem muna eftir kolkrabbanum Páli, en skiptar skoðanir eru á spádómsgetu þeirra.

Markús hefur ekki haft rangt fyrir sér hingað til en hann hefur komið í morgunþáttinn This Morning á sjónvarpsstöðinni ITV fyrir alla leiki Englands á mótinu og spáði rétt fyrir um úrslit leikjanna í hvert einasta skipti.

Hann spáir hávísindalega fyrir um leikina með því að velja sér epli til að borða sem eru annað hvort merk fána Englands eða andstæðingsins.

Markús kom fyrst í þáttinn fyrir fyrsta leik Englands á mótinu þar sem England vann túnis með tveimur mörkum gegn einu. Hann spáði Englandi sigrinum eftir nokkuð langa töf enda er hann spádómssvín en ekki vant sjónvarpssvín

Markús var síðan í beinni frá svínastíunni sinni í Derby þegar hann spáði stórsigri Englendinga á Panömum

Þegar kom að leik Englendinga og Belga spáði Markús Belgum sigri sem reyndist vera rétt kynnum þáttarins og eiganda Markúsar til lítillar gleði

Markús var mættur aftur í stúdíóið fyrir leik Englands og Kólumbíu og eftir að hafa kúkað á gólfið og tekið dramakast borðaði hann ensku eplin en England vann eftir spennuþrunginn leik og vítaspyrnukeppni

Einhverjir áhorfendur voru tortryggnir og sökuðu ITV um að svindla en hafa síðan dregið ásakanir sínar til baka

Það er sennilega bara best að trúa Markúsi því hann hefur alltaf rétt fyrir sér

Það á eftir að koma í ljós hvort Markús ætli að spá fyrir um leik Englands og Svíþjóðar í 8 liða úrslitum en hann fer fram á laugardaginn.

Auglýsing

læk

Instagram