15 ára ökumaður stöðvaður

Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði í nótt 15 ára ökumann sem var á rúntinum með tveimur félögum sínum. Rætt var við foreldra ungu piltanna og málið tilkynnt til barnaverndarnefndar.

Þó nokkrir ökumenn hafa verið staðnir að hraðakstri í umdæminu á síðustu dögum. Sá sem hraðast ók mældist á 139 km hraða þar sem hámarkshraði er 90 km á klukkustund. Hann var jafnframt grunaður um ölvunarakstur og var því handtekinn og færður á lögreglustöð.

Höfð voru afskipti af níu ökumönnum sem óku á negldum dekkjum og voru tveir þeirra án ökuréttinda. Þrír óku með filmur í fremri hliðarrúðum bifreiða sinna og þurfa þeir að færa þær til skoðunar.

Þá voru höfð afskipti af ökumann sem var með tvö börn í aftursæti bifreiðar sinnar, annað í barnabílstól en hvorugt þeirra í belti. Tveir ökumenn óku svo á ljósastaura og var annar þeirra grunaður um ölvunarakstur.

Þetta kemur fram á vef Víkurfrétta

Auglýsing

læk

Instagram