18 sagt upp hjá Samherja

Öllum átján skipverjum á línuveiðiskipi Samherja, Önnu EA 305, hefur verið sagt upp. Þetta kemur fram á vef Vís­is.

Þar er haft eftir Smára Rúnari Hjálmtýssyni, skipstjóra, að áhöfninni hafi verið tilkynnt um uppsagnirnar þegar skipið kom til hafnar á Akureyri í gær.

Hann segir að framundan séu umtalsverða lagfæringar á skipinu þar sem kostnaður geti numið tugum milljóna króna.

Auglýsing

læk

Instagram