Íslenskur skipstjóri handtekinn í Namibíu

Lögreglan í Namibíu hefur handtekið íslenska skipstjórann Arngrím Brynjólfsson vegna gruns um ólöglegar veiðar undan ströndum Namibíu. Arngrímur var leiddur fyrir dómara ásamt rússneskum skipstjóra í gær. Þetta kem­ur fram á vef Nami­bi­an Broa­dcasting Corporati­on (NBC).

Arngrímur starfaði áður um árabil hjá Samherja en ekki er vitað hvort hann hafi verið í erindagjörðum fyrir Samherja þegar handtakan átti sér stað.

 

 

Auglýsing

læk

Instagram