Akureyringur vann 18 milljónir fyrir 13 rétta

Það var glúrinn tippari sem fékk 13 rétta á Enska getraunaseðlinum um helgina og vann tæpar 18 milljónir króna.

Tipparinn keypti miðann í getraunaappinu og er þetta hæsti vinningur sem unnist hefur á Enska getraunaseðilinn sem keyptur er í appinu. Tipparinn tvítryggði 7 leiki, þrítryggði 1 leik og var með eitt merki á 5 leikjum.

Alls kostaði getraunaseðillinn 5.760 krónur. Tipparinn er frá Akureyri og er stuðningsmaður KA.

Auglýsing

læk

Instagram