Auðunn Blöndal leikur besta lögreglumann Reykjavíkur og er í baráttu við sjálfan sig

Árið 2011 tóku þeir Auðunn Blöndal og Sverrir Þór Sverrisson þátt í Trailer-keppni í sjónvarpsþáttunum Auddi og Sveppi og gáfu í kjölfarið út stiklu úr kvikmynd sem þeir kölluðu Leynilögga sem sló í gegn. Þá fæddist hugmynd að skrifa handrit að bíómynd út frá trailernum. 10 árum síðar hófust tökur á kvikmyndinni og er hún væntanleg í Sambíóin á þessu ári.

Hannes Þór Halldórsson, sem meðal annars hefur varið víti frá Messi, leikstýrir myndinni. 

Handritshöfundar eru Hannes Þór Halldórsson, Nína Petersen og Sverrir Þór Sverrisson en á bakvið söguna standa Auðunn Blöndal, Egill Einarsson og Hannes Þór, sem varði víti frá Messi eins og áður hefur komið fram.

Lilja Ósk Snorradóttir hjá Pegasus framleiðir myndina og er Elli Cassata kvikmyndatökumaður. 

Auðunn Blöndal, Egill Einarsson, Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, Björn Hlynur Haraldsson, Vivian Ólafsdóttir og Sverrir Þór Sverrisson fara með hlutverk í kvikmyndinni ásamt glæsilegum hópi leikara. Má sjá glitta í heitustu söngvara landsins, hana Bríeti og Jón Jónsson. 

Eins og sjá má í stiklunni hefur Rúrik Gíslason landað sínu fyrsta hlutverki í bíómynd en hann er að slá í gegn í Þýskalandi þessa dagana sem dansari. 

Töluverð eftirvænting er eftir myndinni en miðillinn Variety fjallaði meðal annars um verkefnið og Leynilöggan var til sýnis á kvikmyndahátíðinni Göteborg Nordic Film Market í Svíþjóð.

Hér má sjá stutta kitlu úr myndinni en stóra sýnishornið er svo væntanlegt á næstu vikum. 

Auglýsing

læk

Instagram