Barnakór Ísakskóla söng með Siggu, Betu og Elínu

„Með hækkandi sól er frábært kórlag“, segir Björg Þórisdóttir tónlistarkennari og kórstjóri. „Krakkarnir náðu þessu strax þegar ég prófaði það á æfingu hjá þeim og því ótrúlega skemmtilegt að Sigga, Beta og Elín skyldu gefa sér tíma til að koma og taka lagið með þeim.“

 Systrunum þremur barst myndbandsklippa af æfingu barnanna í Ísaksskóla þar sem þau voru að taka Með hækkandi sól.  „Við bráðnuðum alveg þetta var svo fallegt hjá þeim,“ segir Sigga og bætir við að þetta hafi ekki verið síður skemmtlegt því að þetta sé gamli skólinn þeirra. Systurnar filmuðu heimsóknina á símann sinn og póstuðu á FB síðuna sína fyrr í dag.

Laginu hefur verið spáð góðu gengi á ýmsum miðlum bæði hérlendis og erlendis.

 Í söngvakeppnisrýni sinni skrifar poppfræðingurinn Arnar Eggert: „Þær syngja náttúrulega eins og englar, eins og þær eiga kyn til, gefa góðu lagi smekkvísi og það er vísir að niði aldanna, séríslenskur vögguvísutónn sem svífur yfir og gerir lagið í senn fornt og nýtt. Hér er að sönnu stíll og klassi yfir og megi þetta framlag fara sem allra lengst.“

 Lagahöfundurinn, Lay low segist aldrei hafa átt von á þessum viðtökum og elskar að heyra frá barnakórum sem eru að syngja þetta. „Ég er búin að fá nokkur myndbönd frá börnum sem eru að syngja og manni hlýnar alveg um hjartarætur. Þjóðlagaformið getur verið svo spennandi og kóravænt. Ég hlakka til að sjá fleiri kóra syngja þetta og er einmitt búin að gera gripablað með textanum við lagið eftir að ég fór að fá beiðnir frá kórstjórum.“

Auglýsing

læk

Instagram