Blaðran sprakk hjá Steinda:„Þetta var eins og að vera á Palla balli en bara edrú“

Leik­ar­inn og skemmtikraft­ur­inn Steindi Jr og unnusta hans, Sigrún Sig­urðardótt­ir, eiga von á barni og ætluðu þau að sprengja svo­kallaða kynja­blöðru sem segði til um kyn ófædds barns þeirra.

Þetta átti að vera notaleg fjölskyldustund á aðfangadag en ekki fór allt eins og áætlað var.

„Planið var að kaupa blöðru sem við mynd­um sprengja sam­an á aðfanga­dag, sem var nú aðallega gert fyr­ir 5 ára dótt­ur okk­ar. Ég fór seinna um dag­inn og græja blöðruna og við öll mjög spennt. Á leiðinni heim, al­einn, á rauðu ljósi ger­ist þetta! Blaðran spring­ur! Það er gjör­sam­lega sturlað hversu mikið kon­fettí var í þess­ari blöðru. Þetta var eins og að vera á Palla balli en bara edrú, í bíl, einn og á Þor­láks­messu. Það var allt út í kon­fettí, meira segja uppi í mér og ofan í narí­un­um. Fólkið í bíln­um við hliðina á mér ösk­ur­hlæj­andi yfir þessu Þor­láks­messu­álagi sem var í gangi þarna hjá mér.“ segir Steindi á Instagram síðu sinni.

Hér fyrir neðan má sjá færslu hans í heild sinni.

View this post on Instagram

Fyrir ykkur sem voruð ekki að hlusta á fm95Blö þá set ég smá útskýringu hér með. Á þorláksmessu fengum við Sigrún að vita kynið á barninu okkar sem er væntanlegt í heiminn í maí. Við fengum miða í umslag upp á Kvennadeild landspítalans og rétt stóðumst freistinguna við að gægjast ekki í umslagið. Sem var ekki létt. Planið var að kaupa blöðru sem við myndum sprengja saman á aðfangadag, sem var nú aðalega gert fyrir 5 ára dóttir okkar. Ég fer seinna um daginn og græja blöðruna og við öll mjög spennt. Á leiðinni heim, aleinn, á rauðu ljósi þá gerist þetta! Blaðran fkn springur! Það er btw gjörsamlega sturlað hversu mikið konfettí var í þessari blöðru. Þetta var eins og að vera á eh Palla balli en bara edrú, í bíl, einn og á Þorláksmessu. það var allt út í konfettí meira segja upp í mér og ofan í naríunum. Fólkið í bílnum við hliðiná mér öskurhlægjandi yfir þessu þorláksmessu álagi sem var í gangi þarna hjá mér. Sem betur fer erum við fólk sem hefur húmor fyrir þessu en þið sem hafið það ekki, þá mæli ég alls ekki með að taka sénsinn á fkn blöðrunni ?

A post shared by Steindi Jr. (@steindijr) on

Auglýsing

læk

Instagram