Borgun segir upp 29 starfsmönnum

Fyrirtækið Borgun sagði upp 29 starfsmönnum í hópuppsögn í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu.

Alls störfuðu 155 manns hjá fyrirtækinu fyrir uppsögnina en í tilkynningunni segir að nærri sextíu nýir starfsmenn hafi verið ráðnir til Borgunar á síðustu mánuðum. Var það í tengslum við yfirstandandi umbreytingu Borgunar yfir í þjónustumiðað tæknifyrirtæki.

„Á sama tíma hefur verið dregið úr umsvifum á öðrum sviðum fyrirtækisins til að snúa við rekstrartapi. Það hefur því miður kallað á fækkun starfsfólks á þeim sviðum,“ segir jafnframt í tilkynningunni.

Auglýsing

læk

Instagram