Daði Freyr kemur fram á Iceland Airwaves í ár

Nýjasti poppkóngur Íslands, Daði Freyr, kemur fram á Iceland Airwaves í ár og verða þetta hans einu stórtónleika á Íslandi á þessu ári. Þetta kemur fram í tilkynningu frá hátíðinni.

Daði „braut internetið“ með framlagi sínu til Eurovision, „Think About Things„, og næsta víst er að lagið hefði fært Íslandi vinningstitilinn í fyrsta sinn. En allt kom fyrir ekki því eins og alkunna er var keppninni frestað og aðdáendur um allan heim sátu eftir með sárt ennið.

Fjöldi fólks kvittaði undir áskorun um að krýna Daða sem sigurvegara ársins og hann sigraði Eurostream 2020, stafrænu Eurovision keppnina sem helstu Eurovision sérfræðingar heims stóðu að.

Lagið fór eins og eldur um sinu á internetinu og stórstjörnur á borð við Russell CroweJennifer GarnerP!nk and James Corden deildu laginu og dásömuðu það. Tónlistarunnendur um allan heim hafa lofað lagasmíðina og Airwaves vinirnir Hot Chip (ein uppáhalds hljómsveit Daða) endurblönduðu lagið eftir eigin höfði. Nýjasta lag Daða „Where We Wanna Be“ (önnur útgáfan hans á ensku) hefur þegar náð heimsathygli. Það er því ekki ofsagt að þessa stundina sé Daði Freyr heitasta íslenska tónlistarstjarnan um heim allan.

Daði fer í tónleikaferðalag erlendis í desember og er nú þegar svo til uppselt á alla tónleikana en framkoman á Iceland Airwaves er eins og áður sagði eina tækifærið til að sjá hann spila á stórtónleikum á Íslandi þetta árið.

,,Ég get ekki beðið eftir að koma fram á uppáhalds tónlistarhátiðinni minni. Það er eitthvað sérstakt við Iceland Airwaves, “ segir Daði Freyr. ,,Get ekki beðið eftir að sýna ykkur hvað ég er búinn að vera að gera!“

Iceland Airwaves verður haldin í 22. annað sinn í ár í miðborg Reykjavíkur og mun borgin lifna við með tónlist, dansi, og gleði dagana 4. – 7. nóvember. Yfir 30 listamenn hafa þegar verið tilkynntir, þar á meðal Metronomy, Black Pumas, Courtney Barnett, Sin Fang, Júníus Meyvant, og Daughters of Reykjavík. Enn eru nokkrar tilkynningar eftir, og munu fjölmargir listamenn bætast við.

Þú getur nælt þér í miða á hátíðina Hér

Auglýsing

læk

Instagram