Daniel Sloss frestað til maí 2022

Uppistandið með Daniel Sloss, HUBRIS, sem átti að koma til Íslands 6. september 2021 hefur nú verið frestað til 13. maí 2022 vegna samkomutakmarkana.

Daniel er skosk súperstjarna í uppistandsheiminum sem margir þekkja frá ótrúlega vinsælum þáttum hans á Netflix (Dark og Jigsaw) og HBO (X) og svo til uppselt er á sýninguna hér á landi.

 

„Miðar á viðburðinn gilda sjálfkrafa áfram á nýju dagsetninguna og miðahafar þurfa ekkert að aðhafast. Þeir hafa nú þegar verið látnir vita. Ef þessi nýja dagsetning hentar ekki geta miðahafar óskað eftir endurgreiðslu fyrir 2. september með því að senda beiðni á info@tix.is

Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þessi breyting kann að valda en um leið þökkum við fyrirfram fyrir þolinmæðina og skilninginn,“ segir í tilkynningu.

Auglýsing

læk

Instagram