Dýrasta þáttaröð sem framleidd hefur verið á Íslandi frumsýnd á sunnudaginn

Fyrsti þáttur af sænsk-íslensku þáttaröðinni Ísalög, eða Tunn is, verður frumsýndur á Rúv á sunnudagskvöldið. Þetta kemur fram á vef Rúv

Þáttaröðin eru sú dýrasta sem framleidd hefur verið á Íslandi en hún kostaði um einn og hálfan milljarð í framleiðslu. Þættirnir gerast að mestu í Grænlandi en þrátt fyrir það fóru tökur að miklu leyti fram hér á Íslandi. Stykkishólmur er meðal annars í hlutverki þorps á Grænlandi í þáttunum.

„Það má segja að þetta sé tekið meira og minna allt hér á Íslandi. Þetta á að gerast að stærstum hluta í Tasiilaq á Austur-Grænlandi. Ástæðan fyrir því er til dæmis að Grænland hefur ekki innviði til að takast á við svona stórt verkefni,“  sagði Kristín Þórhalla Þórisdóttir, eða Kidda Rokk eins og hún er gjarnan kölluð, í Morgunútvarpinu á Rás 2.

Meðal leik­ara er sænska leik­kon­an Lena Endre, sem lék einnig í mynd­inni Karl­ar sem hata kon­ur, Al­ex­and­er Karim, Bianca Kronlöf, Græn­lend­ing­ur­inn Ang­unn­gu­aq Lar­sen og danska leik­kon­an Iben Dorner, en þau tvö síðast­nefndu léku bæði í sjón­varpsþátt­un­um Bor­gen, sem sýnd­ir voru á RÚV fyr­ir nokkr­um árum við góðar und­ir­tekt­ir.

Auglýsing

læk

Instagram