today-is-a-good-day

Einn með hinn al-íslenska þriðja vinning

Hvorki 1. né 2. vinningur gengu út þessa vikuna í Víkingalottó, en einn var með  hinn al-íslenska þriðja vinning og hlýtur hann rúmlega 2 milljónir króna. Miðinn var keyptur í Krambúðinni í Hólmavík.

Enginn var með 1. vinning í Jóker en sjö kræktu sér í 2. vinning og fá þeir 100 þúsund krónur að launum. Miðarnir voru keyptir á eftirtöldum stöðum; N1 á Ísafirði, N1 á Höfn í Hornafirði, Skerjakollu á Kópaskeri, Víkurskálanum í Bolungarvík, tveir á heimasíðunni lotto.is og einn er í áskrift.

Auglýsing

læk

Instagram