Eldur í húsi í nótt – Einn fluttur á sjúkrahús

Eldur kom upp í timburhúsi við Samtún í Reykjavík í nótt. Tilkynnt var um eldinn um fjögurleytið og var allt tiltækt slökkvilið sent á staðinn. Þetta kemur fram á vef mbl.is

Ungur maður var kominn út úr húsinu þegar slökkvilið mætti á svæðið, að sögn varðstjóra í slökkviliði höfuðborg­ar­svæðis­ins, og reyndist maðurinn með töluverða reykeitrun. Hann var fluttur á slysadeild.

Nokkuð greiðlega gekk að slökkva eldinn en mikill reykur fylgdi eldinum og var á tíma óttast að eldurinn myndi læsa sig í þak hússins. Ekki er vitað um eldsupptök en húsið er töluvert illa farið eftir eldsvoðann.

Auglýsing

læk

Instagram