Endurlífgunartilraunir á manninum báru ekki árangur

Maðurinn, sem greint var frá að fallið hefði í vök í gærkvöldi, er látinn. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi.

Þar kemur einnig fram að maðurinn hafi setið fastur í vatni út á mýri og hefði sjálfur kallað eftir aðstoð. Mikið hafði dregið af honum þegar komið var að honum og missti hann meðvitund fljótlega eftir að fyrsti maður kom að honum.

Endurlífgunartilraunir báru ekki árangur og var hann úrskurðaður látinn við komu á heilbrigðisstofnun Suðurlands. Lögreglan á Suðurlandi er með málið til rannsóknar en dánarorsök er ekki vituð að svo stöddu.

Auglýsing

læk

Instagram