Félag málandi kvenna í Listasal Mosfellsbæjar

Opnun fyrstu sýningar listahópsins Félag málandi kvenna (Association of Female Painters) verður í Listasal Mosfellsbæjar laugardaginn 16. október kl. 13-15. Heiti sýningarinnar er Endurheimt(a)/Reclaim(ing).

 Félag málandi kvenna var stofnað árið 2019 af listakonum sem flestar hlutu menntun í Listaháskóla Íslands og hafa málverkið sem sinn helsta miðil. Eitt af markmiðum hópsins er að finna styrk í samstöðunni og auka sýnileika málandi kvenna af sinni kynslóð. Hópurinn virkar einnig sem tengslanet þar sem listakonurnar geta rætt sína myndlist við jafningja, skipst á sögum og hugmyndum og hjálpast að með ýmis hagnýt atriði. Félag málandi kvenna vill að konur, sem vinna með þann hornstein myndlistar sem málverkið er, fái meira pláss í myndlistarlífinu hérlendis og aukna athygli virtra sölugallería.

 Félag málandi kvenna er ört stækkandi hópur en sextán listakonur verða með verk á sýningunni í Listasal Mosfellsbæjar. Þær eru Aðalheiður Daly Þórhallsdóttir, Andrea Aldan Hauksdóttir, Ásgerður Arnardóttir, Brynhildur Þórðardóttir, Dýrfinna Benita Basalan-Garðarsdóttir, Freyja Reynisdóttir, Hildur Ása Henrýsdóttir, Íris María Leifsdóttir, Kristín Morthens, Mellí-Melkorka Þorkelsdóttir, Ragnheiður Þorgrímsdóttir, Sif Stefánsdóttir, Saga Sig, Sara Björk Hauksdóttir, Sunneva Ása Weisshappel og Vera Hilmars. Sýningarstjórar eru Katerína Spathí og Þórhildur Tinna Sigurðardóttir.

 Listasalur Mosfellsbæjar er staðsettur inn af Bókasafni Mosfellsbæjar, Þverholti 2. Hann er opinn kl. 12-18 virka daga og kl. 12-16 á laugardögum. Síðasti sýningardagur er 12. nóvember. Aðgangur er ókeypis og öll velkomin.

Auglýsing

læk

Instagram