Féll af reiðhjóli og lést

Karlmaður á sjötugsaldri lést á Landspítalanum gær, en maðurinn féll af reiðhjóli á göngustíg í Seljahverfinu í Breiðholti síðastliðin laugardag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.
Tilkynning um slysið barst lögreglu á níunda tímanum á laugardagsmorgun og var maðurinn fluttur á slysadeild, en hann lést svo á spítalanum í gær eins og áður sagði. Ekki er hægt að greina frá nafni mannsins að svo stöddu.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og rannsóknarnefnd samgönguslysa rannsaka tildrög slyssins.
Auglýsing

læk

Instagram