Fjáröflunartónleikar í Post-húsinu í Skeljanesi

FÖSTUDAGINN 18. JÚNÍ NÆSTKOMANDI FARA FRAM RISAVAXNIR FJÁRÖFLUNARTÓNLEIKAR TIL AÐ SAFNA FYRIR HLJÓÐKERFI Í POST-HÚSIÐ.

  • POST-HÚSIÐ
  • SKELJANES 21
  • FÖSTUDAGINN 18. JÚNÍ
  • KL 20:00
  • MIÐAVERÐ: 1.000 KR EÐA „PAY WHAT YOU CAN“

FRAM KOMA:

CYBER

BSÍ

ÓLAFUR KRAM

SUPERSPORT!

PÍNU LITLAR PEYSUR

SUCKS TO BE YOU NIGEL

+ FLEIRI TBA

UM POST-HÚSIÐ:

Post-húsið er listamannarekið tónleikarými á Skeljanesi í Skerjafirði. Markmið rýmisins er að upphefja grasrótar-menningarstarf á Íslandi og því er haldið úti af listasamlaginu Post-dreifingu.

„Við höfum verið að reyna að glæða dapurlegt næturlíf Reykjvíkur smá lífi á undanförnum vikum, en það hefur reynst erfitt á köflum því við eigum ekki hljóðkerfi. Sem betur fer eigum við góða vini að, sem hafa hjálpað okkur með því að lána græjur – en nú er kominn tími til að koma framleiðslutækjunum í hendur verkafólks menningarlífsins – við ætlum að kaupa okkar eigið hljóðkerfi. Og þið, ágætu vinir, getið hjálpað okkur, með því að borga ykkur inn á FÁRÁNLEGA fjáröflunartónleika á föstudaginn kemur,“ segir í tilkynningu.

Auglýsing

læk

Instagram