Fjórir unnu 66 milljónir hver

Fyrsti vinningur gekk ekki út að þessu sinni í Eurojackpot útdrætti kvöldsins, en fjórir skiptu með sér 2. vinningi og hlýtur hver þeirra rúmlega 66 milljónir króna. Einn miði var keyptur í Finnlandi og þrír í Þýskalandi.

Átta hlutu 3. vinning og fá þeir rúmlega 11,6 milljónir króna hver. Þrír miðar voru keyptir í Finnlandi, tveir í Danmörku og einn í Þýskalandi, Króatíu og Noregi.

Tveir voru með fjórar réttar Jókertölur í réttri röð og fá þeir 100 þúsund krónur í vinning. Annar miðinn er í áskrift en hinn var keyptur á heimasíðunni, lotto.is

Auglýsing

læk

Instagram