FM95Blö kynnir Blökastið – skemmtilegasta hlaðvarp landsins

Vinsælasti útvarpsþáttur landsins byrjar með Blökastið, nýtt brakandi ferskt og skemmtilegt hlaðvarp með Audda, Steinda og Agli en Blökastið verður eingöngu fáanlegt í áskrift á fm95blo.is – nýr geggjaður þáttur alla þriðjudaga og strákarnir lofa því að þetta verði skemmtilegasta hlaðvarp landsins, jafnvel Evrópu!

Föstudagsþátturinn verður áfram á sínum stað á FM957 alla föstudaga milli 16 og 18 en með Blökast áskrift fá aðdáendur útvarpsþáttarins 4 auka þætti í mánuði í formi hlaðvarps, ásamt alls konar skemmtilegu aukaefni. Strákarnir verða einnig af og til í mynd og stundum í beinni útsendingu frá hinum og þessum stöðum.

„Hver veit nema þeir geti loksins upplifað draum sinn og verið í beinni útsendingu frá Harrah´s hótelinu í Atlantic City. Maður má nú láta sig dreyma,“ segir í tilkynningu.

Áskriftin kostar 1390kr. á mánuði og inniheldur

  • Nýr þáttur á hverjum þriðjudegi
  • Af og til þættir í video
  • Óvænt aukaefni
  • Auka umræður
Auglýsing

læk

Instagram