Framlengja 200 manna samkomubann um tvær vikur

Ríkisstjórnin fundaði í morg­un í Salt­hús­inu í Grinda­vík og ræddi þar innanlandsaðgerðir og fyrirkomulag skólastarfs.

Eftir fundinn var haldinn blaðamannafundur þar sem meðal annars kom fram að núverandi aðgerðir innanlands verða framlengdar um 2 vikur, en það er það sem sóttvarnalæknir lagði til í minnisblaði sínu.

„Það kemur fram í minnisblaðinu að meira en helmingur einstaklinga 70 ára og eldri sem hafa greinst í þessari bylgju sé á fyrstu viku veikinda og því sé ekki komin reynsla á því hvernig gangur veikinda verður hjá þessum hópi. Í því ljósi telur sóttvarnalæknir ekki tímabært að aflétta aðgerðum innanlands,“ sagði Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra á fundinum.

Svandís sagði einnig að sam­komutak­mark­an­ir munu einnig gilda um skólastarf en grímu­skylda verður þó minni. Yngri nem­end­ur, fæddir 2006 og síðar, munu taka grímu niður þegar sest er niður í skóla­stofu.

Munu þessar takmarkanir taka gildi frá og með laug­ar­deg­in­um 14. ág­úst og gilda til 27. ág­úst.

Auglýsing

læk

Instagram